
Fiskmarkaðurinn
May 15, 2008Við fórum nýlega út að borða á Fiskmarkaðinn í Aðalstræti og það klikkaði ekki frekar en venjulega. Þetta væri kannski ekki í frásögur færandi, Fiskmarkaðurinn er með allra bestu veitingahúsum borgarinnar, nema í þetta sinn voru foreldrar mínir með í för og mamma er með svæsið ofnæmi fyrir ýmsu matarkyns. Hún lendir í rúminu í þrjá daga ef hún slysast til að borða eitthvað sem inniheldur dropa af ediki, til dæmis. En, ég hef aldrei séð neinn veitingastað glíma jafnvel við þetta og þau gerðu á Fiskmarkaðnum, þetta var alger snilld hjá þeim.