h1

Of mikið af því góða

May 3, 2008

Ég hitti kunningja minn á Thorvaldsens í Austurstræti í gær. Við ætluðum að borða hádegismat.

Það fór ekki vel – við settumst við barinn, spjölluðum í kortér og áttuðum okkur á að við vorum hvorki komnir með vatnsglös eða matseðla, báðum um hvort tveggja, biðum í annað kortér og fengum, biðum aftur í kortér og pöntuðum, biðum svo í kortér í viðbót og báðumst loks afsökunar en við hefðum bara ekki meiri tíma.

Þjónninn var auðvitað ferlega sorrí, og hún skrifaði fyrir okkur lítinn miða um að við mættum koma aftur síðar og borða frítt. Við veljum okkur þá líklega rigningardag, því ástæðan fyrir því að þjónustan gekk svona illa þennan daginn var að það var glampandi sól og öll borðin úti á Austurvelli fullsetin. Túristar út um allt. Það voru líka tvöfalt fleiri þjónar en venjulega… en eldhúsið því miður ekkert stærra en á hverjum öðrum vetrardegi.

Ég býst við að lexían sé að hugsa sinn gang áður en falast er eftir meiri viðskiptum en höndla má með góðu móti?

Við félagi minni röltum bara að pulsuvagninum og fengum okkur pulsu og kók í staðinn, sem var ágætt. Þar var miklu lengri röð en venjulega, en hún gekk ágætlega hratt.

Leave a Comment